Ferill 476. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1435  —  476. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (málsmeðferð).

(Eftir 2. umræðu, 28. mars.)


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 39. gr. laganna:
     a.      Í stað lokamálsliðar 2. mgr. koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Persónuvernd ákveður hvort kvörtun sem berst gefur nægar ástæður til rannsóknar og getur úrskurðað um hvort brot hefur átt sér stað. Persónuvernd skal upplýsa kvartanda um framvindu og niðurstöður máls innan hæfilegs tíma. Persónuvernd skal jafnframt upplýsa kvartanda um heimild hans til að bera ákvarðanir og málsmeðferð stofnunarinnar undir dómstóla, sbr. 4. mgr.
     b.      Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein sem orðast svo:
                      Ákvarðanir Persónuverndar, þ.m.t. ákvarðanir um að taka kvartanir ekki til rannsóknar að hluta til eða öllu leyti, og aðra málsmeðferð stofnunarinnar má bera undir dómstóla með venjubundnum hætti.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.